Föstudaginn 22. febrúar var send út spurningakönnun til allra starfsmanna Akureyrarbæjar sem eru í meira en 30% starfshlutfalli. Könnunin verður send
á netföng starfsmanna en þeir sem hafa ekki netföng munu fá upplýsingar um það á vinnustað sínum hvernig þeir geta svarað
könnuninni.
Í könnuninni er spurt um líðan, heilsu og starfstengd viðhorf starfsfólks sveitarfélagsins. Sams konar könnun var gerð árið 2010 og
árið 2011 og eru kannanirnar hluti af doktorsverkefni Hjördísar Sigursteinsdóttur í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Með könnuninni er einnig verið að uppfylla markmið í mannauðstefnu og jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar.
Starfsfólk er vinsamlega beðið um að svara spurningalistanum eins ítarlega og það treystir sér til. Það tekur u.þ.b. 10-15
mínútur.
Könnunin veitir mikilvægar upplýsingar sem gagnast til að stuðla að bættu starfsumhverfi. Í kjölfar fyrri kannana var skipaður sérstakur
starfshópur sem fékk það verkefni að fylgja niðurstöðum eftir og gera tillögur um aðgerðir. Starfshópurinn hefur t.a.m. komið á
námskeiðum um starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur og stuðlað að því að boðið verði upp á fræðslu um
vellíðan á vinnustað og viðbrögð við einelti á vinnustöðum bæjarins.
Í síðustu könnun var svarhlutfall nokkuð gott eða um 68%. Niðurstöður gáfu þar af leiðandi góða vísbendingum um
líðan starfsfólks Akureyrarbæjar. Þegar á heildina er litið voru niðurstöður könnunarinnar ánægjulegar og virðist
starfsfólk Akureyrarbæjar almennt ánægt í starfi. Niðurstöður gáfu til kynna að 85,8% starfsmanna sé mjög eða frekar
sammála fullyrðingunni „Þegar á heildina er litið er ég ánægð(ur) í starfi mínu“. Skoða má niðurstöður fyrri kannana í starfsmannahandbókinni á vefnum.
Starfsfólk er eindregið hvatt til þess að svara spurningalistanum og leggja þannig rannsókninni lið og stuðla að bættu starfsumhverfi
fyrir starfsfólk Akureyrarbæjar.