Starfslokanámskeið verður haldið 5. mars, 7. mars og 12. mars.
Markmið námskeiðsins er að hjálpa starfsfólki að undirbúa starfslok vegna aldurs, aðlaga sig breyttu lífsmynstri og stuðla að
innihaldsríku lífi að starfi loknu. Markhópurinn er starfsfólk eldra en 60 ára og er námskeiðið þátttakendum að
kostnaðarlausu.
Samstarfsaðilar: Akureyrarbær, Sjúkrahúsið á Akureyri, Norðurorka, Kjölur og Eining Iðja.
Skráning: Hjá starfsmannaþjónustu Akureyrarbæjar í síma 460-1060 eða með tölvupósti almarun@akureyri.is. Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 1. mars.
Staðsetning: Lionssalur á 4. hæð í Skipagötu 14.
Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:
Þriðjudagur 5. mars
16.30 Inngangur um námskeiðið: Ingunn Helga Bjarnadóttir verkefnastjóri starfsþróunar hjá Akureyrarbæ.
16.35 Lífeyrisþegar og Almannatryggingar: Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins.
17.15 Kaffi
17.30 Réttindi hjá stéttarfélögum eftir að starfi lýkur: Björn Snæbjörnsson formaður Einingar Iðju.
17.45 Punkturinn: Bergljót Jónasdóttir, forstöðumaður tómstundamála í Rósenborg.
18.00 Andlegar og félagslegar hliðar þess að hætta að vinna: Elín Díanna Gunnarsdóttir, dósent við
Háskólann á Akureyri.
Fimmtudagur 7. mars
16.30 Kynning á sjálfboðaliðastarfi Rauða krossins á Akureyri: Hörður Ólafsson sjálfboðaliði og fyrrverandi
skólastjóri Lundarskóla.
16.50 Kynning á starfi Félags eldri borgara: Jóhannes Sigvaldason formaður Félags eldri borgara á Akureyri.
17.15 Kaffi
17.30 Forvarnir: Meredith Cricco öldrunarlæknir.
18.00 Félagsstarf aldraðra á vegum Akureyrarbæjar: Anna Marit Níelsdóttir félagsráðgjafi á búsetudeild
Akureyrarbæjar
Þriðjudagur 12. mars
16.30 Lífeyrismálin:
- Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar stéttarfélags
- Kári Arnór Kárason frá Lífeyrissjóðnum Stapa
- Ágústa Gísladóttir frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
17.45 Kaffi
18:00 Áhrif markvissrar þjálfunar á heilsufar: Þóra Guðný Baldursdóttir
Sjúkraþjálfari á Bjargi.