Ef óskað er eftir að Akureyrarbær taki tillit til launa frá öðrum við útreikning staðgreiðslu launa þarf að senda
beiðni þar um, annað hvort skriflega eða í tölvupósti á viðkomandi launafulltrúa.
Í beiðninni þarf að koma fram nafn og kennitala launaþega, frá hvaða tíma og hvaða launafjárhæð
Akureyrarbær á að miða við sem laun á mánuði frá öðrum launagreiðanda við útreikning staðgreiðslu
launa hjá Akureyrarbæ.
Athugið að hér er átt við meðaltals heildarlaun frá öðrum launagreiðendum að frádregnu 4% framlagi launþega í
lífeyrissjóð og að frádregnu allt að 2% framlagi launþega í séreignarlífeyrissjóð ef um það er að
ræða.
Staðgreiðsla launa er reiknuð er reiknuð í þremur þrepum og er útreikningur í hverju þrepi er sem hér segir:
- 37,34% staðgreiðsla af tekjum 0 - 230.000 kr.
- 40,24% staðgreiðsla af tekjum 230.001 - 704.367 kr.
- 46,24% staðgreiðsla af tekjum yfir 704.367 kr.
Frá reiknaðri staðgreiðslu dregst síðan persónuafsláttur sem er 46.532 kr. á mánuði árið 2012.
Athugið að ef kemur í ljós við álagningu 2011 vegna tekna ársins 2010 að launþegi hefur vangreitt staðgreiðslu þá er
innheimt 2,5% álag við álagningu.
Ef einhverjar spurningar vakna, endilega hafið þá samband við Starfsmannaþjónustu í síma 460 1000 eða björgl@akureyri.is.
Ennig má finna upplýsingar á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is.