Slippfélagið býður starfsfólki Akureyrarbæjar vildarkjör á málningu. Kjörin eru mismunandi eftir vöruflokkum en eru í
öllum tilfellum bestu kjör sem Slippfélagið býður.
Af vörum framleiddum af Slippfélaginu er lágmarksafsláttur 40%.
Vildarkjörin gilda einnig á listamannavörum.
Nægjanlegt er að taka fram í viðskiptunum að viðkomandi starfi hjá Akureyrarbæ.
Slippfélagið var stofnað í mars 1902. Í upphafi einskorðaðist starfsemin við skipaviðgerðir og tengd verkefni en árið 1951 hóf
félagið framleiðslu á málningu og í dag er Slippfélagið annar af tveim íslenskum málningarframleiðendum. Fyrirtækið er
í eigu íslenskra aðila. Uppistaða af vörulínu þeirra er íslensk framleiðsla Slippfélagsins auk innfluttra málningarvara frá
Jotun í Noregi og Alcro í Svíþjóð, auk tækja til málningarvinnu frá Graco. Slippfélagið býður því upp
á mjög breiða vörulínu hvort sem er fyrir húsadeild eða iðnað. Einnig er Slippfélagið einn stærsti innflutningsaðili landsins
á vörum fyrir myndlistafólk og eru þar stærst Daler-Rowney og Lukas.
Vörur Slippfélagsins hafa verið seldar á Akureyri í yfir hálfa öld, lengi vel hjá fyrirtækinu Köfun. Árið 1998 stofnaði
Ingimar Friðriksson ásamt fjölskyldu sinni fyrirtækið Litaland og hóf sölu á vörum Slippfélagsins, fjöldi fagmanna, fyrirtækja og
einstaklinga hóf í framhaldinu að versla við fyrirtækið. Það var síðan árið 2012 að Slippfélagið keypti rekstur
Litalands og nú á haustdögum opnaði fyrirtækið nýja og glæsilega verslun undir nafni Slippfélagsins á Gleráreyrum 2
Akureyri.