Dagana 30.-31. október nk. verður haldin alþjóðleg ráðstefna um jafnrétti kynjanna á norðurslóðum. Ráðstefnan
verður í Hofi og eru fjölmargir áhugaverðir fyrirlestrar á dagskrá eins og sjá má á vef ráðstefnunnar hér: http://www.arcticiceland.is/is/gender-equality-in-the-arctic
Á ráðstefnunni verða aðstæður kvenna og karla á norðurheimskautssvæðinu skoðaðar í víðum skilningi og athyglinni
m.a. beint að aðgangi og yfirráðum auðlinda, þátttöku kynjanna í ákvarðanatöku og stjórnmálum,
byggðaþróun, öryggi og almennri velferð. Tilgangurinn er að stuðla að víðtækri, markvissri samræðu um jafnréttismál
samtímans og beina um leið sjónum að áskorunum sem framtíðin kann að bera í skauti sér m.t.t. þeirra loftslags- og umhverfisbreytinga
sem eru að verða og í samhengi við efnahags- og félagslega þróun ríkja og samfélaga á norðurslóðum.