Samkvæmt mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem
það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.
Reglulega er boðið upp á nýliðafræðslu en slík fræðsla á að standa öllum nýjum starfsmönnum Akureyrarbæjar
til boða innan árs frá því að þeir hefja störf. Námskeiðin fara fram á vinnutíma starfsmanna eins og kjarasamningar kveða
á um, en ella eiga starfsmenn rétt á launum á meðan á námskeiði stendur.
Markmiðið með nýliðafræðslu er að þátttakendur kynnist mismunandi starfsemi hjá Akureyrarbæ og fái innsýn inn í
hin ýmsu mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, beint og óbeint.
Nánari upplýsingar um nýliðafræðslu gefur Ingunn Helga Bjarnadóttir, verkefnastjóri starfsþróunar - ingunn@akureyri.is eða Alma Rún Ólafsdóttir verkefnastjóri auglýsinga og fræðslumála - almarun@akureyri.is
Dagskrá nýliðafræðslunnar má
nálgast hér.