Samkvæmt Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar á allt
nýtt fastráðið starfsfólk að fara á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið
Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum.
Miðvikudaginn 2. október nk. verður boðið upp á fræðslu fyrir nýtt starfsfólk hjá Akureyrarbæ.
Markmiðið með fræðslunni er að nýtt starfsfólk kynnist mismunandi starfsemi hjá bænum og fái innsýn inn í hin ýmsu
mál sem snerta starfsmenn Akureyrarbæjar, bæði beint og óbeint.
Fastráðið starfsfólk sem unnið hefur skemur en eitt ár hjá Akureyrarbæ getur skráð sig á nýliðafræðsluna
á starfsmannavef Akureyrarbæjar. Mikilvægt er þó að gera slíkt í samráði við
yfirmann.
Hér má finna dagskrá
nýliðafræðslunnar: