Ýmsum gagnlegum tenglum hefur verið komið fyrir í starfsmannahandbókinni undir fjármál heimilanna og vellíðan.
Í ljósi séstakra aðstæðna á fjármálamarkaði hefur nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet verið sett á fót á vegum félagsmálaráðuneytisins. Í verkefninu felst nýtt vefsvæði, upplýsingamiðstöð fyrir almenning, fyrirtæki og fjölmiðla og netspjall.
Þar má finna tengingar og helstu upplýsingar um stöðu mála og margvíslega upplýsingaþjónustu og ráðgjöf sem í boði er hjá ráðuneytum og stofnunum.
Hægt er að ná sambandi við upplýsingamiðstöðina í síma 545 8950 eða í grænu símanúmeri 800 1190 milli 8 og 22 alla virka daga. Símtöl í græna númerið eru endurgjaldslaus. Einnig er hægt að beina fyrirspurnum til miðstöðvarinnar í tölvupósti á netfangið: midstod@mfa.is.