Jafnréttisstefna samþykkt
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 1. nóvember sl. nýja jafnréttisstefnu fyrir Akureyrarbæ. Endurskoðun jafnréttisstefnunnar
var í höndum samfélags- og mannréttindaráðs og jafnréttisráðgjafa. Eins og áður byggist jafnréttisstefna bæjarins fyrst
og fremst á ákvæðum jafnréttislaga og því hvernig vinna á að framgangi þeirra auk þess sem áherslum úr
Jafnréttissáttmála Evrópu var fléttað inn.
Endurskoðaða stefnan er sett upp á sama hátt og sú fyrri. Meginforsendur eru þær sömu og áður sem og leiðarljós. Fjórir
meginkaflar eru í stefnunni: 1) stjórnkerfið, 2) starfsfólk, 3) kynbundið ofbeldi og áreitni og 4) skólar, íþrótta- og
tómstundastarf. Verkefni stefnunnar eru sett fram í samráði við viðkomandi ábyrgðaraðila og í þeim tilvikum þar sem um sömu
verkefni er að ræða og í núgildandi stefnu eru það fyrst og fremst áfangarnir sem voru uppfærðir.
Meðal stórra verkefna á gildistíma stefnunnar eru innleiðing kynjaðrar fjárhagsáætlanagerðar, gerð launakönnunar sem nær til
alls starfsfólks og skilgreining viðmiða sem nota á við mat á stöðu jafnréttismála í skólum bæjarins.
Stefnuna má nálgast hér.