Starfsfólk grunnskóla Akureyrarbæjar á námskeiði í SÍMEY
Fjórða árið í röð tekur SÍMEY þátt í sí- og endurmenntun skólaliða, stuðningsfulltrúa, ritara og
fleiri starfsstétta í grunnskólum Akureyrar með námskeiðinu „Að verða hluti af heild“. Mikil ánægja hefur verið með
þetta námskeið og má segja að það sé orðið hluti af starfsdögum grunnskólanna.
Tilgangurinn með námskeiðinu er að efla og hvetja starfsmenn í kröfuhörðum störfum fyrir komandi vetur. Það er von og trú allra sem
að þessu verkefni koma að vel hafi tekist til og skili þátttakendum uppbyggilegri fræðslu sem nýtist í starfi.
Námskeiðið var haldið dagana 19. og 20. ágúst og í þetta sinn tóku starfsmenn þátt í 8 klukkustunda námskeiði
þar sem fjallað meðal annars er um ADHD, einhverfu og asperger, og fjölskylduráðgjöf. Leiðbeinendur hafa allir mikla og víðtæka
þekkingu á sínu sviði og komu frá ADHD samtökunum og frá skóladeild Akureyrarbæjar. Öllum þátttakendur bauðst að
sækja viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa til að skoða frekari möguleika til sí- og endurmenntunar að námskeiði loknu. Stór
hópur þátttakenda nýtti sér það.
Við hjá SÍMEY og Akureyrarbæ þökkum þátttakendum og leiðbeindum kærlega samstarfið á námskeiðinu og óskum
starfsfólki velfarnaðar í sínum störfum á komandi vetri.
Námskeiðið styrkja Sveitamennt og Mannauðssjóður Kjalar.