Öryggistrúnaðarmenn og verðir eiga að vera til staðar á öllum vinnustöðum (vinnuverndarfulltrúar) og ber vinnustöðum (skv.
lögum nr 46/1980) að sjá til þess að þessir aðilar fái tækifæri til þess að afla sér nauðsynlegrar þekkingar og
menntunar varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Í haust verða haldin tvö námskeið á Akureyri fyrir öryggistrúnaðarmenn og verði.
- Vinnuvernd ehf og Mannvit hf standa fyrir námskeiði sem haldið verður hjá Símey 14. og 15. október – Nánari upplýsingar.
- Vinnueftirlitið heldur námskeið í Lionssalnum í Skipagötu dagana 14. og 15. nóvember - Nánari upplýsingar.