Lífshlaupið verður ræst í fimmta sinn miðvikudaginn 1. febrúar n.k. Um 16.400 manns tóku þátt í
Lífshlaupinu á síðasta ári og fjölgaði þátttakendum um rúmlega 3000 á milli ára. Lífshlaupið höfðar til
allra landsmanna og er hægt að skrá þátttöku á vefsíðu Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is en þar gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í:
- * vinnustaðakeppni frá 1. til 21. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
- * hvatningarleik fyrir grunnskóla frá 1. til 14. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- * einstaklingskeppni þar sem hver og einn getur skráð inn sína hreyfingu allt árið
Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla
og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum embætti landlæknis
um hreyfingu. Einnig er hægt að fylgjast með stöðunni í hverju sveitarfélagi fyrir sig þar sem kemur fram fjöldi liða, þátttakenda,
daga og mínútna.
Vinnustaðir/skólar er sá vettvangur þar sem hagsmunir þessara aðila og íþróttahreyfingarinnar liggja saman við uppbyggingu almennings- og
fyrirtækjaíþrótta, forvörnum og velferð samfélagsins til framtíðar. Við óskum eftir liðsinni ykkar við að hvetja
vinnustaði, grunnskóla og einstaklinga í ykkar sveitarfélagi til þátttöku og nota þannig tækifærið til að skapa létta
stemningu og efla í leið líkama, sál og félagsandann með því að hreyfa sig daglega. Meðfylgjandi er merki verkefnisins sem má nota
með frétt t.d. á heimasíðu.
Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs
ÍSÍ , jona@isi.is í síma: 514-4000.