Hugmyndir um sparnað

Snemma í vor var auglýst eftir hugmyndum starfsmanna hjá Akureyrarbæ um lækkun kostnaðar í rekstri sveitarfélagsins. Tekið var fram að hugmyndirnar mættu ná til allra rekstrarþátta í starfseminni hvort sem um væri að ræða laun eða önnur rekstrargjöld. Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, veitti í dag verðlaun fyrir bestu innsendu hugmyndirnar.

Starfsmenn létu ekki sitt eftir liggja og bárust fjölmargar tillögur. Framkvæmdastjórn valdi tillögur frá eftirtöldum starfsmönnum:

  • Hugrún Sigmundsdóttir, leikskólastjóri á Pálmholti fyrir hugmynd sína um að skólamötuneyti bæjarins fái úthlutað matjurtargörðum til afnota. Þar gæti sameinast sparnaður, umhverfisfræðsla og útikennsla. Hugrún átti jafnframt verðlaunatillögu um að koma á vöruskiptum milli stofnana bæjarins.
  • Davíð Hjálmar Haraldsson, starfsmaður á launadeild og Trausti Tryggvason starfsmaður á Fasteignum sendu báðir inn tillögur um sparnað í götulýsingu.
  • Bergur Þorri Benjamínsson á framkvæmdadeild og Jón Aðalsteinn Brynjólfsson í Lundarskóla fengu svipaða hugmynd um hvernig spara mætti með því að nota ókeypis hugbúnað í tölvur starfsmanna.

Í verðlaun var árskort í Sundlaugar Akureyrar.

Sparnadur09

Talið frá vinstri: Hermann Jón Tómasson, Trausti Tryggvason, Hugrún Sigmundsdóttir, Jón Aðalsteinn Brynjólfsson, Davíð Hjálmar Haraldsson og Bergur Þorri Benjamínsson með son sinn Benjamín Þorra Bergsson í fanginu.



Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan