Dagana 25. nóv - 10. des stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið hefur í frá 1991 unnið að því að draga
kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim nýta átakið til að krefjast aðstoðar og
stuðnings til handa fórnarlömbum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta
réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum
mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan
heim.
Akureyrarbær hefur tekið þátt í átakinu í mörg ár ásamt stofnunum og félagasamtökum.
Dagskrána fyrir þessa daga má finna hér
Allir að kynna sér dagskrána og taka þátt.