Grímseyingum fjölgar
Tveir nýir Grímseyingar litu dagsins ljós þann 19. maí síðastliðinn og jókst því fjöldi eyjaskeggja um 3%. Þau Júlía Ósk Ólafsdóttir og Kristófer Sindri Pétursson eignuðust sitt fyrsta barn sem var 15 marka drengur og síðar sama dag eignuðust þau Rannveig Vilhjálmsdóttir og Bjarni Gylfason 14 marka stúlku, sem er þeirra fimmta barn.
20.05.2016 - 16:00
Lestrar 293